Einhver sagði mér að í mars kæmi vor hér í Danmörkunni! Ég get nú ekki alveg sagt það, það snjóaði s.s síðastliðnu 2 dag og er spáð áframhaldandi snjókomu. Ég fór út í gærkvöldi með myndavélina aðeins að prófa mig áfram. Maður verður nú að láta reyna á það sem ég lærði á námskeiðinu hjá honum Pálmari. Þær eru aðeins yfirlýstar en þetta kemur allt með æfingunni :)
Annars höfum við haft það fínt hérna í Goldenberg. Engilbjört kom og var í þrjár nætur hjá okkur í síðustu viku. Við tókum hverja búðina á fætur annarri og skönnuðum vel og auðvitað var gengið út með poka úr sumum. Inga Lóa millilenti svo hérna á fimmtudeginum og kom og hitti okkur niðri á Striki auðvitað. Hún tók líka ágætis session í búðunum á mjög skömmum tíma. Við sátum auðvitað þess á milli á kaffihúsum og spjölluðum um heima og geima.
Á laugardeginum skelltum við okkur fjölskyldan til Malmö. Tókum rölt í bænum og kíktum á kaffihús. Ég leit á manneskjuna fyrir framan mig og þar stóð Eva með kærastanum Einari og voru þau að njóta dagsins í Malmö líka. Ótrúlega skemmtileg tilviljun :) Við brunuðum svo til Þórhildar og Magnúsar í mat. Mjög gaman að koma til þeirra í fallega húsið þeirra í "sveitinni". Við eigum pottþétt eftir að fara oft í heimsókn til Svíþjóðar :)
Nú eru allir komnir í páskafrí og bíðum við spennt eftir páskaungunum með eggin hehehe. Mamma og pabbi eru að koma í kvöld og ætla að vera hjá okkur fram yfir helgi. Auðvitað er vel skipulögð helgi framundan.
Við erum auðvitað í kasti yfir genginu og vonum bara að swap markaðurinn snúi sér sem fyrst til baka.
Fyrir þá forvitnu þá eru samningaviðræður á lokastigi og vonandi skýrist allt í næstu viku. Kannski líka tími til kominn, því það er alveg komið gott af hangsi og væri gott að fara fá tekjur inn á heimilið.
Jæja best að fara að þrífa áður en gamla settið mætir á svæðið og tekur allt út múhahahhaa
Ég óska öllum gleðilegra páska.
2 comments:
Fínar myndir hjá þér :-)
Gaman að fylgjast með ykkur.
Það var saumó hjá Siggu K í gær, alveg kominn tími á að hittast og var gaman. Ég óska ykkur öllum gleðilegra páska, hafið það sem best
Tók þær á 30 sek. Rosa gaman að prófa sig áfram.
Post a Comment