Sunday, February 24, 2008

Helgin

Á föstudaginn fór ég með Atla á leikskólann og gekk ágætlega.  Það kom smá erfitt moment.  Það er haldin samverustund hjá krökkunum þar sem þau setjast öll í hring og eru lesin upp, svo er einn valinn til að telja krakkana og farið í einhverja leiki.  Atli mús varð svolítið lítill í sér og brotnaði aðeins niður og þá fékk mamman tár í augun líka.  Það hlýtur að vera erfitt að skilja ekki neitt og geta ekki tjáð sig.  Vonandi kemur þetta fljótlega.  Hann gleymdi sér svo alveg í leik og spjallaði bara á íslensku við krakkana.  Það eru 2 önnur íslensk börn á leikskólanum en á öðrum deildum.

Skólastjórinn í skólanum hringdi loksins í mig á föstudaginn og við vorum boðuð á fund á morgun þannig ég vona að Marinó geti byrjað í skólanum á þriðjudag.  Við bíðum spennt eftir því að fá að vita hvort það verði meiri bið á þessu.

Á föstudagskvöldinu fór ég svo í saumó hjá Andreu þar sem 10 íslenskar voru samankomnar að ræða málin.  Það var mjög fínt, líka gaman að komast aðeins út :)

Á laugardaginn fórum við svo með lestinni upp til Aarhus í heimsókn til Óskar og Vilborgar.  Þar var þvílíkt vel tekið á móti okkur.  Axel og Ómar voru búnir að þrífa bílinn okkar hátt og lágt og áttu ekki til orð yfir skítnum hmmm.  KK taldi líka að hann hefði aldrei þrifið hann svona vel.  Nú er bara að viðhalda þrifunum.  Atli og Marinó voru klesstir við frændur sína allan tíma og voru dekstraðir út í hið óendanlega.  Í dag keyrðum við svo heim á kagganum sem var aðeins hnjaskaður eftir flutningana en við vonum bara að tryggingarnar coveri það.  

 Í síðustu viku fengum við uppsagnarbréf á leigunni!  Málið er að sú sem sá um allt fyrir okkur  lét okkur hafa reikning til að leggja inn á hjá leigufélaginu og við greiddum trygginguna og leiguna fyrir febrúar inn á þann reikning frá Íslandi.  Þegar KK ætlaði svo að fara að leigja stæði í bílakjallaranum fékk hann það ekki þar sem við skulduðum félaginu.  Við fórum að kanna málið og hafði þá frúin látið okkur fá reikning hjá öðru leigufélagi.  S.s tæp millj. lá inni hjá röngum aðila.  Hún ætlaði í ganga í málið strax.  Við leigðum stæðið og héldum að allt væri klappað og klárt.  11 feb fengum við svo bréf um að febrúar væri ekki greiddur og KK hringdi strax í frúnna og sendum við henni kvittunina.  Í vikunni var svo dinglað og var það pósturinn með ábyrgðarbréf sem var s.s. uppsögn á leigusamningnum, við áttum að vera flutt út innan 8 daga takk fyrir.   Ég hringdi strax og ræddi við frúnna og ætlaði hún að láta mig hringja en þar sem mér fannst þetta hennar feill lét ég hana standa í þessu.  Við vonum bara að það mæti ekki hérna flutningamenn í næstu viku og beri okkur út á götu.  Við fengum á föstudaginn gíróinn fyrir mars þannig ég ætla bara að borga hann og vona að allt verði í lagi, annars flyt ég inn á frúnna með allt mitt hafurtask hahahaha ef hún bara vissi.

Jæja ég færir fleiri fréttir af okkur hér í baunalandi seinna.  Bið ykkur vel að lifa þangað til.

Kv. Beggs

Thursday, February 21, 2008

Byrjunin

Jæja við erum s.s flutt til Köben.  Ég verð eiginlega að vera hreinskilin með hvað mér finnst kerfið hérna vægast sagt svolítið spes.  Við s.s byrjuðum á því að fara og skrá okkur inn í landið en þá lá kerfið niðri þannig við þurftum að koma aftur, ekkert mál með það.  Þegar við komum aftur gekk þetta allt eins og í sögu og erum við öll komin með okkar dönsku kennitölur.

Til að fá bankareikning getur maður ekki gengið inn í næsta banka eins og á Íslandi og opnað sinn bankareikning, neiiii það þarf að panta fund í bankanum og tók það viku að fá þann fund.  Við röltum yfir í bankann á mánudaginn í góðri trú um að allt myndi ganga vel en viti menn kerfið lá niðri þannig að fundurinn fór fyrir bí og við fórum aftur heim og biðum eftir símtali sem kom 2 dögum seinna.  Nú bíðum við bara eftir okkar kortum þannig við getum byrjað að spandera :)

Þegar við fengum íbúðina afhenta þá átti maður að koma og fara yfir hvað væru margir slökkvarar, klósett, hurðar o.þ.h. í íbúðinni.  Hann s.s meldaði sig 1.feb kl.10.  Kristján var vaknaður fyrir allar aldir en svo leið og beið og ekki mætti maðurinn.  Viku seinna kom afsökunnarbréf og ný tímasetning.  Við drifum okkur í að koma sem flestu fyrir þannig að íbúðin liti þokkalega út.  Daginn sem maðurinn átti að koma biðum við og biðum en nei ekki mætti hann.  Það var ekki fyrr en mín sendi vel orðað mail á leigufélagið sem að hann loksins mætti til að taka allt út.  Ef ég ætti að bera saman saudana og dana þá held ég að saudarnir hafi jafnvel verið áreiðanlegri, ótrúlegt en satt.  Annars er íbúðin mjög fín og alveg frábærlega staðsett.  Búum í litlu íslendingasamfélagi hérna, held að það séu 4 ísl. fjölskyldur í okkar blokk.

Atli komst strax inn á leikskóla og byrjaði í vikunni í aðlögun, svolítð sjokk bjóst ekki við að þetta gerðist svona fljótt.  Það er aftur á móti annað mál með skólann hans Marinós.  Við fórum strax á fund hjá skólaskrifstofunni sem gaf okkur upp síma og uppl. um skólann sem hann byrjar á að fara í og átti ég að hringja í byrjun þessarar viku í skólastjórann.  Það var ekki fyrr en 4 dögum seinna, 8 símtölum og búin að skilja eftir nokkur skilaboð með númerinu mínu að haft var samband til baka.  Við fengum s.s fund næsta mánudag í skólanum og vonandi fær hann að byrja strax daginn eftir.  Ég hélt ég myndi snappa á einhverjum röngum aðila í þessu ferli.  Maður lærir kannski að verða þolinmóðari hérna :)

Annars er búið að vera mjög rólegt hjá okkur.  Kristján hefur verið á fundum og við erum búin að taka því rólega og átta okkur á hvernig landið liggur.  Marinó byrjaði í fimleikum í vikunni og er s.s farinn að æfa 3x í viku 2 tíma í senn.  Hann ætlar að keppa 1.mars í Árhúsum þannig þá fer hele familien að styðja við bakið á honum og kíkjum svo í kaffi til Óskars og Vilborgar á eftir.  

Ég held ég láti þetta nægja í bili.

Mvh. Begga bauni