
Bara svona til að svekkja ykkur langaði mig að setja inn veðurspánna fyrir næstu daga hérna í Köben :) Maður er s.s vel rauður eftir daginn því maður heldur alltaf að þetta sé síðasti sólardagur sumarsins.
Helgin var alveg frábær. Þórhildur, Magnús og börn komu í mat á föstudaginn, vel blaut eftir rigninguna í Tívolí. Á laugardaginn átti KK afmæli og bauð hann Ævari og Guggu í mat. Á sunnudeginum fórum við svo í brunch til Andreu og Óla. Sökum veðurs fórum við ekki inn fyrr en 8 um kvöldið.
Við gerðum okkur ferð í Bilka vikunni áður og fjárfestum í grilli, eins og allt annað þá var 8 daga afhendingafrestur. Á föstudeginum ætluðum við nú heldur betur að sækja grillið og orðin mjög spennt að fara að grilla (þó svo það megi ekki á svölunum). Við hrökkluðumst í burtu því það var eins og það væri vikulokun í búðum því það var svo mikið af fólki. KK ákvað að fara kl.8 morguninn eftir að sækja herlegheitin, þegar röðin var loksins kominn að honum eftir 40 mín bið þá var honum tilkynnt að grillið væri staðsett of hátt uppi og að hann gæti komið daginn eftir að sækja það. Auðvitað dreif KK sig strax daginn eftir og fékk loksins grillið eftir mikla bið. Þegar kassinn var opnaður kom í ljós að grillið var í frumeindum KK til mikillar gleði :) Það tók tímana tvenna að setja fíneríið saman og ég er eiginlega fegin að hafa ekki verið heima á þeim tímapunkti.
Það er saumó hjá mér kvöld. Ætli ég noti ekki daginn í að baka þar sem maður er svolítið rauður heheheh
Þar til næst
