Wednesday, March 19, 2008

Snjókorn falla ....




Einhver sagði mér að í mars kæmi vor hér í Danmörkunni!  Ég get nú ekki alveg sagt það, það snjóaði s.s síðastliðnu 2 dag og er spáð áframhaldandi snjókomu.  Ég fór út í gærkvöldi með myndavélina aðeins að prófa mig áfram.  Maður verður nú að láta reyna á það sem ég lærði á námskeiðinu hjá honum Pálmari.  Þær eru aðeins yfirlýstar en þetta kemur allt með æfingunni :)

Annars höfum við haft það fínt hérna í Goldenberg.  Engilbjört kom og var í þrjár nætur hjá okkur í síðustu viku.  Við tókum hverja búðina á fætur annarri og skönnuðum vel og auðvitað var gengið út með poka úr sumum.  Inga Lóa millilenti svo hérna á fimmtudeginum og kom og hitti okkur niðri á Striki auðvitað.  Hún tók líka ágætis session í búðunum á mjög skömmum tíma.  Við sátum auðvitað þess á milli á kaffihúsum og spjölluðum um heima og geima.

Á laugardeginum skelltum við okkur fjölskyldan til Malmö.  Tókum rölt í bænum og kíktum á kaffihús.  Ég leit á manneskjuna fyrir framan mig og þar stóð Eva með kærastanum Einari og voru þau að njóta dagsins í Malmö líka.  Ótrúlega skemmtileg tilviljun :)  Við brunuðum svo til Þórhildar og Magnúsar í mat.  Mjög gaman að koma til þeirra í fallega húsið þeirra í "sveitinni".  Við eigum pottþétt eftir að fara oft í heimsókn til Svíþjóðar :)  

Nú eru allir komnir í páskafrí og bíðum við spennt eftir páskaungunum með eggin hehehe. Mamma og pabbi eru  að koma í kvöld og ætla að vera hjá okkur fram yfir helgi.  Auðvitað er vel skipulögð helgi framundan.

Við erum auðvitað í kasti yfir genginu og vonum bara að swap markaðurinn snúi sér sem fyrst til baka.

Fyrir þá forvitnu þá eru samningaviðræður á lokastigi og vonandi skýrist allt í næstu viku.  Kannski líka tími til kominn, því það er alveg komið gott af hangsi og væri gott að fara fá tekjur inn á heimilið.

Jæja best að fara að þrífa áður en gamla settið mætir á svæðið og tekur allt út múhahahhaa

Ég óska öllum gleðilegra páska.

Friday, March 7, 2008

Vikan

Héðan úr baunalandi er allt það besta að frétta.  Þessi vika er sveitavika í leikskólanum hjá Atla sem þýðir að 1 sinni í mánuði fer deildin hans 4 daga í röð upp í sveit á bóndabæ þar sem krakkarnir fá að leika sér út í náttúrunni.  Kristján fór með honum á mánudaginn svo hefur hann farið einn hina dagana.  Þeim finnst þetta frábært og er Atli mjög sáttur við þetta allt saman. 

Marinó er mjög sáttur í skólanum og fer svo í frístundarheimilið eftir skóla.  Á mánudaginn fer hann svo með Lindu, sú sem tekur hann í dönskukennslu í skólanum, ásamt fleiri útlendingum í sveitarferð.  Mikil spenna fyrir það.

Fimleikarnir eru frábærir hérna og er Marinó þvílíkt spenntur að fara á æfingar.  Ég sit í rúma 2 tíma á meðan og fylgist með og spjalla við foreldrana.  Það er mjög gaman að sjá framfarirnar.  Í gær voru þeir að æfa heljarstökk og framflikk.  Ég lifi mig ótrúlega inn í þetta, kannski einum of :) Það er fínt að fara og hitta foreldrana, allri mjög almennilegir og ég tel að maður komist fljótar inn í samfélagið þegar börnin eru farin að stunda einhverjar tómstundir.  Nú þarf ég bara að fara að koma Atla af stað líka.

Kristján er farinn að æfa á fullu.  Annað hvort er hann úti að hlaupa eða í ræktinni.  Svo er hann líka frekar harður í mataræðinu fyrir utan negrakossana sem hann dettur stundum í muhahahaha.  

Á þriðjudaginn fann ég fyrir smá eirðarleysi þannig ég dró KK með mér í hjólatúr og hjóluðum við niður á Istegade og kíktum í búðir og skelltum okkur á kaffihús.  Það var mjög nice.  Það er um að gera að nýta tímann þar til hann byrjar að vinna.

Við keyptum okkur sjónvarp á miðvikudaginn í síðustu viku og áttum að sækja það á föstudeginum.   Ég hringdi voða spennt í búðina til að tékka hvort tækið væri komið en eins og KK var búinn að segja þá var svarið miðvikudagur í næstu viku.  Á miðvikudaginn hringdi ég aftur og þá var svarið í síðasta lagi á föstudag.  Ég óþolinmóða manneskjan skildi eftir 2 skilaboð til að búðin myndi hringja í mig (hringdi í þjónustuverið) en enginn hringdi til baka.  Í gær hringdi ég aftur og þá var það ekki heldur komið og ég lýsti yfir þvílíkri óánægju minni með þetta (var orðin svo spennt að fá tækið).  Það var svo seinnipartinn í gær sem hringt var og tækið var komið jibbíí.  KK sótti tækið og ég náttúrlega vildi fá það strax upp, þannig gærkvöldið fór í að horfa á fína sjónvarpið þó það væri ekkert skemmtilegt í boði.  

Fyrsti gesturinn er búinn að boða komu sína í næstu viku, gaman gaman.  Engilbjört vinkona ætlar að koma á þriðjudaginn og vera fram á föstudag.  Þannig næsta vika verður í búðum og á kaffihúsum.  Ekki leiðinlegt það og hlakka ég mikið til að fá hana.

Jæja þá er kaffibollinn búinn og ég ætla að fara að taka úr þvottavélinni :)

Bið að heilsa í bili




Saturday, March 1, 2008

Uppþvottavélastríðið mikla

Jæja ég held ég hafi loksins sigrað uppþvottavélina mína, þ.e.a.s kalkið í vatninu.  Maður heldur alltaf að allt virki eins og heima á Íslandi, en nei svo er ekki :)  Við gerðum okkur enga grein fyrir því að það þyrfti að setja salt fyrir uppþvottavélar í vélina þannig loksins þegar vélin komst í gang og við voða glöð og settum allt á fullt þá kom allt hvítt út.  Ég er að segja ykkur að ég hélt að það væri allt ónýtt.  Ég eyddi miklum tíma í að vaska allt upp og ekki er enn allt orðið eins og það var.  En allavega eftir að við vorum búin að setja ég veit ekki hvað marga poka af salti, kaupa hin og þessi efni til að fá gljáa og hreinsa uppþvottavélina og ekkert gekk.  Það var ekki fyrr en eftir örugglega 20 tilraunir í þvottum að vélin virkaði.  Ég verð samt að  viðurkenna að ég hlakka ekkert sérstaklega til að fá rafmagns og hitareikninginn hehehehe.   Sem betur fer fórum við í heimsókn til Vilborgar og Óskars um síðustu helgi þar sem hún fræddi mig um ýmsa hluti eins og að það þarf að setja  minus kalktöflur í þvottavélina í hvert skipti sem maður þvær þvottinn og svo er ediksýra sem er látin renna í gegnum kaffivélar og önnur eldhústæki, allt þetta til þess að að þessi tæki hafi sem lengstan líftíma.  Annars væri maður örugglega í því að skipta út nýjum tækjum.

Annars gengur allt fínt.  Marinó er búinn að fara 2 daga í skólann og líst vel á.  Hann lenti í mjög góðum bekk og eru krakkarnir mjög hjálpsamir og reyna að gera allt til að auðvelda honum fyrir.

Atli er búinn að standa sig eins og hetja og er búinn að vera 3 daga í þessari viku aleinn á leikskólanum.  Hann er mest með einum strák á sinni deild og skipar honum í bak og fyrir á íslensku og hinn skilur ekki neitt.  Það er frekar fyndið að fylgjast með þessu.

Á föstudaginn fengu Gummi og Ása gáminn sinn og KK fór og hjálpaði þeim að bera inn dótið.  Þau eru s.s flutt í næstu blokk og er mikill spenningur að fá leikfélaga á mínu heimili.

Í dag laugardag vaknaði fjölskyldan fyrir kl. 6 til að keyra til Árhúsa þar sem Marinó var að keppa í árlegri liðakeppni hér í Danmörku á milli allra liða.  Atli nennti ekki að eyða tíma sínum í íþróttarhúsinu heldur kaus hann frekar að vera dekstraður af frændum sínum (kannski frekar stjórna þeim).  Það var frábært að sjá framförina hjá Marinó, þeir þurfa þó að bæta sig aðeins því þeir lentu í 4. sæti af 5.  Hann var í skýjunum eftir daginn og mátti hann það líka alveg.

Á morgun ætlum við skötuhjúin svo að skella okkur 2 í bæinn og rápa um og skoða á meðan Lilja ætlar að hafa ofan af fyrir strákunum.

Bið að heilsa í bili

Mvh. Begga