Sunday, June 8, 2008

Gestagangurinn í júní byrjaður :)

Reykjavík

A412°CVeðurupplýsingar: lettskyjad
AkureyriVeðurupplýsingar: null  
Egilsst.Veðurupplýsingar: skyjadS411°C
LondonVeðurupplýsingar: nullN324°C
K.höfnVeðurupplýsingar: heidskirtNA324°C
New YorkVeðurupplýsingar: skyjadV228°C


Þar sem ég er hooked á veðurspánni ákvað ég að sýna muninn á stöðunni í dag á Íslandi og hér :)
Dagurinn í dag var með heitasta móti.  Við fórum út í garð í 4ra ára afmæli hjá Jóa í hádeginu og enduðu allir í skugganum þar sem það var orðið svo ólíft í hitanum.  
Ströndin hefur verið mjög vinsæl hjá okkur á frídögum.

Annars er gestagangurinn byrjaður á fullu.  Ingibjörg og Hlín komu í 2 nætur í vikunni og gistu 2 nætur.  Fannst samt eins og þær hefðu ekkert komið.  Þær vöknuðu drifu sig út og komu svo rétt yfir blánóttina.  Nú bíð ég bara eftir að fara út á völl og sækja Svanhildi og Herdísi sem ætla að vera í 3 nætur.  KK er akkúrat að fara til Íslands á morgun þannig að Lilja ætlar að passa annað kv. þannig við getur nú aðeins kíkt út.  Sem betur fer mega Atli og Marinó akkúrat mæta á morgun og hinn í frístundarheimilið og á leikskólann.  Vonandi fer þetta verkfall að verða búið. Það liggur við að það þurfi að setja Atla aftur í aðlögun.

Við skelltum okkur fjölskyldan í gær á kaffihús og fórum svo í risa hjólreiðatúr um Köben, þ.e. hjóluðum á Österbro og skoðuðum okkur um þar.  Alltaf verið að spá og spekúlera í mögulegum staðsetningum ef maður skyldi nú fjárfesta hér á landi.

Við despó píurnar hér í nimbusnum ætlum að skella okkur á Sex and the city myndina og fá okkur einn cocktail fyrir, það er nú samt hægar en gert að fá miða á myndina þannig við tökum hana kannski bara á DVD í staðinn...

Over and out



Sunday, June 1, 2008

Lagersala lagersala lagersala

2 til 6-døgnsudsigt
2 til 6-døgnsudsigt

Enn einu sinni að svekkja ykkur,  en það er bara búið að vera geðveikt veður hérna.
Ma og pa komu í heimsókn á afmælinu hjá Atlaling.  Gosi hafði komið helgina áður, s.s á meðan ég var á Íslandi.  Haldið þið ekki að hann hafi smitað alla hérna í nimbusnum af ælupest ojojoj.  Það lögðust allir hver af fætur öðrum og þar á meðal mamma og pabbi líka.  Ekki það skemmtilegasta, Gosi á von á hatursbréfi hérna frá íbúunum í Nimbusnum.
  Við héldum upp á afmælið hjá Atla hérna út í garði, það var aðeins fámennara heldur en hefur áður verið en það var góðmennt.  Smá tilbreyting að vera ekki sveitt fram á nótt að baka hahahha.

Andrea og ég skelltum okkur á lagersölu hjá Marlene Birger og gerðum góð kaup.  Daginn eftir fórum við svo í góða bæjarferð án þess að stíga inn á Strik og fundum út að það væri lagersala í WoodWood daginn eftir.  OMG við hjónin gengum út með ruslapoka :)  sem betur fer vorum við á stóra hjólinu. Við erum að tala um að flíkur sem kostuðu áður tugi þúsunda hafi verið á 100-300DKK.  Okkur fannst það ekki leiðinlegt!  Eftir lagersöluna skelltum við okkur í bakarí og garð og nutum góða veðursins.  Dagurinn endaði svo á stepudjammi á Jolene.

Við fjölskyldan skelltum okkur svo á ströndina í dag.  Frúin var að reyna að ná bóndafarinu fallega sem hún var búin að ná sér í í sólinni.


Næst á dagskrá hjá okkur er að taka á móti Ingibjörgu, Hlín og Davíð í þessari viku.  Hlökkum mikið til að hitta þau.

Þangað til næst

Tuesday, May 6, 2008

Sólbrennd og sátt


Bara svona til að svekkja ykkur langaði mig að setja inn veðurspánna fyrir næstu daga hérna í Köben :)  Maður er s.s vel rauður eftir daginn því maður heldur alltaf að þetta sé síðasti sólardagur sumarsins.  

Helgin var alveg frábær.  Þórhildur, Magnús og börn komu í mat á föstudaginn, vel blaut eftir rigninguna í Tívolí.  Á laugardaginn átti KK afmæli og bauð hann Ævari og Guggu í mat.  Á sunnudeginum fórum við svo í brunch til Andreu og Óla.  Sökum veðurs fórum við ekki inn fyrr en 8 um kvöldið.  

Við gerðum okkur ferð í Bilka vikunni áður og fjárfestum í grilli, eins og allt annað þá var 8 daga afhendingafrestur.  Á föstudeginum ætluðum við nú heldur betur að sækja grillið og orðin mjög spennt að fara að grilla (þó svo það megi ekki á svölunum).  Við hrökkluðumst í burtu því það var eins og það væri vikulokun í búðum því það var svo mikið af fólki.  KK ákvað að fara kl.8 morguninn eftir að sækja herlegheitin, þegar röðin var loksins kominn að honum eftir 40 mín bið þá var honum tilkynnt að grillið væri staðsett of hátt uppi og að hann gæti komið daginn eftir að sækja það.  Auðvitað dreif KK sig strax daginn eftir og fékk loksins grillið eftir mikla bið.  Þegar kassinn var opnaður kom í ljós að grillið var í frumeindum KK til mikillar gleði :)  Það tók tímana tvenna að setja fíneríið saman og ég er eiginlega fegin að hafa ekki verið heima á þeim tímapunkti.

Það er saumó hjá mér kvöld.  Ætli ég noti ekki daginn í að baka þar sem maður er svolítið rauður heheheh

Þar til næst


Friday, May 2, 2008

Sól sól skín á mig...



Það iðar allt af lífi í Kóngsins Köbenhavn, veðrið er búið að vera vægast sagt frábært fyrir utan einn rigningardag í gær.
Atli er búinn að vera alla vikuna í fríi á leikskólanum þannig að við erum bara búin að vera 2 að dúlla okkur í rólegheitum á meðan Marinó er í skólanum og KK að mála :)

Ég skellti mér í stelpu/húsmæðraorlof til Oslóar um síðustu helgi.  Helgin var frábær!  Við vorum heima hjá Sigrúnu allan tímann, fyrir utan þegar íslandshúsmæðurnar skelltu ser í mallið til að versla "smá".  Reyndar fórum við inn til Osló á laugardeginum og Christina kom með til að skoða Operuhúsið.  Ég var voða glöð með að fá að skoða eitthvað aðeins af menningunni í Osló.  Takk Sigrún fyrir frábæra helgi, þetta verður sko pottþétt endurtekið.  Manni finnst alveg ótrúlegt að koma óþreyttur heim hahahaha.

Það eykst gestagangurinn og nú er júní orðinn fullur :)  Herdís og Svanhildur ætla að skella sér til okkar í nokkra daga og verður mjög gaman að hitta þær.  Hildur og Felipe eru að hugsa um að koma líka eina helgi.  Davíð mætir í mat til okkar og svo auðvitað Magnea og Frosti.  Það verður voða gaman að fá alla.  Við hittum örugglega fólk oftar eftir að við fluttum út :)

Þórhildur og Magnús ætla að koma í dag mat til okkar og svo á KK afmæli á morgun og þá mæta hingað Ævar og Gugga.  Herra forvitinn uppgvötaði hvað ég hafði hugsað mér að gefa honum og bannaði mér það, s.s hjólabretti.  Kannski viturlegt þar sem aldurinn er farinn að segja til sín hehehe.  Þannig ég og Atli skelltum okkur í bæinn og keyptum gjöf.  Þegar við komum heim földum við hana vel og vandlega. Haldiði ekki að hann hafi farið af stað, ég er viss um að hann hafi verið að leita af henni, og fann hann gjöfina.  Ég er búin að vera brjáluð út af þessu og langar helst að skila þessu :)  

Á miðvikudaginn síðasta hittust svo desperate housewifes hérna í nimbusnum.  Við vorum 9 talsins og var svaka stuð hjá okkur.  Vonandi verður þetta að svona reglulegum hitting.

Jæja er farin út í góða veðrið, þar til næst... 

Sunday, April 20, 2008

Sumar sumar

Það er orðið annsi langt síðan síðast :)  
Páskarnir komnir og farnir, mamma og pabbi komu og voru hjá okkur í 5 daga.  Alveg frábært að fá þau og styttist bara í næstu heimsókn þeirra í maí vei vei.
Gunnar, Rakel og Ísar komu og gistu hjá okkur eina nótt.  Við fórum með þeim í brunch á Laundromat, keyrðum eftir Strandvejen og kíktum í kaffi í Dragör.  Eigum vonandi eftir að sjá þau fljótlega aftur.
Hinrik frændi millilenti hér og kíkti í kaffi og smörrebrauð.  
Við fórum til Nakskov á fimleikamót.
Marinó fór í fyrsta bekkjarafmælið.
Hittum Aðalheiði og Gumma í brunch.

Fyrir utan allt þetta hefur verið nóg að gera í að halda tuskunni á lofti og moppunni á gólfinu.  Annars hefur hugur okkar verið á Íslandi hjá pabba KK þar sem hann veiktist alvarlega og er hefur legið á sjúkrahúsi síðastliðnar 2 vikur.  En sem betur fer fór allt á betri veginn. 
Við höfum tekið því rólega í aðlögunarferlinu en nú eru flestir að fá nóg af þessu atvinnuleysi og peningaeyðslu.  KK fékk sér tímabundna vinnu sem málari.  Hann er mættur kl.7 og búinn kl.15 og er hann held ég mjög öflugur í því starfi, allavega segir hann það hahaha.
Síðustu dagar hafa verið frábærir veðurfarslega séð, sól og sumarylur.  Á föstudaginn, þ.e. store bededag hittust nokkrir íslendingar og grilluðu saman í tilefni dagsins.  Við skelltum okkur svo á Bakken í gær með Sigga Frigg.  Áttum frábæran dag og var móðirin æstust í tækin og dró börnin með sér til afsökunnar.  Enda mátti það sjá á fötum hennar í lok dagsins þar sem þau voru gegnum blaut eftir mikið vatnsstríð á bátum.  Tók þessu mjög alvarlega ;)
Það styttist óðum í stelpuferðina til Osló.  Fer á föstudaginn til Sigrúnar í stelpuferð og er svaka spennt.  Það verður æðislegt að hitta stelpurnar og njóta helgarinnar með þeim.
Verður vonandi styttra á milli frétta næst.  Þangað til þá túrílítú.




Wednesday, March 19, 2008

Snjókorn falla ....




Einhver sagði mér að í mars kæmi vor hér í Danmörkunni!  Ég get nú ekki alveg sagt það, það snjóaði s.s síðastliðnu 2 dag og er spáð áframhaldandi snjókomu.  Ég fór út í gærkvöldi með myndavélina aðeins að prófa mig áfram.  Maður verður nú að láta reyna á það sem ég lærði á námskeiðinu hjá honum Pálmari.  Þær eru aðeins yfirlýstar en þetta kemur allt með æfingunni :)

Annars höfum við haft það fínt hérna í Goldenberg.  Engilbjört kom og var í þrjár nætur hjá okkur í síðustu viku.  Við tókum hverja búðina á fætur annarri og skönnuðum vel og auðvitað var gengið út með poka úr sumum.  Inga Lóa millilenti svo hérna á fimmtudeginum og kom og hitti okkur niðri á Striki auðvitað.  Hún tók líka ágætis session í búðunum á mjög skömmum tíma.  Við sátum auðvitað þess á milli á kaffihúsum og spjölluðum um heima og geima.

Á laugardeginum skelltum við okkur fjölskyldan til Malmö.  Tókum rölt í bænum og kíktum á kaffihús.  Ég leit á manneskjuna fyrir framan mig og þar stóð Eva með kærastanum Einari og voru þau að njóta dagsins í Malmö líka.  Ótrúlega skemmtileg tilviljun :)  Við brunuðum svo til Þórhildar og Magnúsar í mat.  Mjög gaman að koma til þeirra í fallega húsið þeirra í "sveitinni".  Við eigum pottþétt eftir að fara oft í heimsókn til Svíþjóðar :)  

Nú eru allir komnir í páskafrí og bíðum við spennt eftir páskaungunum með eggin hehehe. Mamma og pabbi eru  að koma í kvöld og ætla að vera hjá okkur fram yfir helgi.  Auðvitað er vel skipulögð helgi framundan.

Við erum auðvitað í kasti yfir genginu og vonum bara að swap markaðurinn snúi sér sem fyrst til baka.

Fyrir þá forvitnu þá eru samningaviðræður á lokastigi og vonandi skýrist allt í næstu viku.  Kannski líka tími til kominn, því það er alveg komið gott af hangsi og væri gott að fara fá tekjur inn á heimilið.

Jæja best að fara að þrífa áður en gamla settið mætir á svæðið og tekur allt út múhahahhaa

Ég óska öllum gleðilegra páska.

Friday, March 7, 2008

Vikan

Héðan úr baunalandi er allt það besta að frétta.  Þessi vika er sveitavika í leikskólanum hjá Atla sem þýðir að 1 sinni í mánuði fer deildin hans 4 daga í röð upp í sveit á bóndabæ þar sem krakkarnir fá að leika sér út í náttúrunni.  Kristján fór með honum á mánudaginn svo hefur hann farið einn hina dagana.  Þeim finnst þetta frábært og er Atli mjög sáttur við þetta allt saman. 

Marinó er mjög sáttur í skólanum og fer svo í frístundarheimilið eftir skóla.  Á mánudaginn fer hann svo með Lindu, sú sem tekur hann í dönskukennslu í skólanum, ásamt fleiri útlendingum í sveitarferð.  Mikil spenna fyrir það.

Fimleikarnir eru frábærir hérna og er Marinó þvílíkt spenntur að fara á æfingar.  Ég sit í rúma 2 tíma á meðan og fylgist með og spjalla við foreldrana.  Það er mjög gaman að sjá framfarirnar.  Í gær voru þeir að æfa heljarstökk og framflikk.  Ég lifi mig ótrúlega inn í þetta, kannski einum of :) Það er fínt að fara og hitta foreldrana, allri mjög almennilegir og ég tel að maður komist fljótar inn í samfélagið þegar börnin eru farin að stunda einhverjar tómstundir.  Nú þarf ég bara að fara að koma Atla af stað líka.

Kristján er farinn að æfa á fullu.  Annað hvort er hann úti að hlaupa eða í ræktinni.  Svo er hann líka frekar harður í mataræðinu fyrir utan negrakossana sem hann dettur stundum í muhahahaha.  

Á þriðjudaginn fann ég fyrir smá eirðarleysi þannig ég dró KK með mér í hjólatúr og hjóluðum við niður á Istegade og kíktum í búðir og skelltum okkur á kaffihús.  Það var mjög nice.  Það er um að gera að nýta tímann þar til hann byrjar að vinna.

Við keyptum okkur sjónvarp á miðvikudaginn í síðustu viku og áttum að sækja það á föstudeginum.   Ég hringdi voða spennt í búðina til að tékka hvort tækið væri komið en eins og KK var búinn að segja þá var svarið miðvikudagur í næstu viku.  Á miðvikudaginn hringdi ég aftur og þá var svarið í síðasta lagi á föstudag.  Ég óþolinmóða manneskjan skildi eftir 2 skilaboð til að búðin myndi hringja í mig (hringdi í þjónustuverið) en enginn hringdi til baka.  Í gær hringdi ég aftur og þá var það ekki heldur komið og ég lýsti yfir þvílíkri óánægju minni með þetta (var orðin svo spennt að fá tækið).  Það var svo seinnipartinn í gær sem hringt var og tækið var komið jibbíí.  KK sótti tækið og ég náttúrlega vildi fá það strax upp, þannig gærkvöldið fór í að horfa á fína sjónvarpið þó það væri ekkert skemmtilegt í boði.  

Fyrsti gesturinn er búinn að boða komu sína í næstu viku, gaman gaman.  Engilbjört vinkona ætlar að koma á þriðjudaginn og vera fram á föstudag.  Þannig næsta vika verður í búðum og á kaffihúsum.  Ekki leiðinlegt það og hlakka ég mikið til að fá hana.

Jæja þá er kaffibollinn búinn og ég ætla að fara að taka úr þvottavélinni :)

Bið að heilsa í bili