Það er orðið annsi langt síðan síðast :)
Páskarnir komnir og farnir, mamma og pabbi komu og voru hjá okkur í 5 daga. Alveg frábært að fá þau og styttist bara í næstu heimsókn þeirra í maí vei vei.
Gunnar, Rakel og Ísar komu og gistu hjá okkur eina nótt. Við fórum með þeim í brunch á Laundromat, keyrðum eftir Strandvejen og kíktum í kaffi í Dragör. Eigum vonandi eftir að sjá þau fljótlega aftur.
Hinrik frændi millilenti hér og kíkti í kaffi og smörrebrauð.
Við fórum til Nakskov á fimleikamót.
Marinó fór í fyrsta bekkjarafmælið.
Hittum Aðalheiði og Gumma í brunch.
Fyrir utan allt þetta hefur verið nóg að gera í að halda tuskunni á lofti og moppunni á gólfinu. Annars hefur hugur okkar verið á Íslandi hjá pabba KK þar sem hann veiktist alvarlega og er hefur legið á sjúkrahúsi síðastliðnar 2 vikur. En sem betur fer fór allt á betri veginn.
Við höfum tekið því rólega í aðlögunarferlinu en nú eru flestir að fá nóg af þessu atvinnuleysi og peningaeyðslu. KK fékk sér tímabundna vinnu sem málari. Hann er mættur kl.7 og búinn kl.15 og er hann held ég mjög öflugur í því starfi, allavega segir hann það hahaha.
Síðustu dagar hafa verið frábærir veðurfarslega séð, sól og sumarylur. Á föstudaginn, þ.e. store bededag hittust nokkrir íslendingar og grilluðu saman í tilefni dagsins. Við skelltum okkur svo á Bakken í gær með Sigga Frigg. Áttum frábæran dag og var móðirin æstust í tækin og dró börnin með sér til afsökunnar. Enda mátti það sjá á fötum hennar í lok dagsins þar sem þau voru gegnum blaut eftir mikið vatnsstríð á bátum. Tók þessu mjög alvarlega ;)
Það styttist óðum í stelpuferðina til Osló. Fer á föstudaginn til Sigrúnar í stelpuferð og er svaka spennt. Það verður æðislegt að hitta stelpurnar og njóta helgarinnar með þeim.
Verður vonandi styttra á milli frétta næst. Þangað til þá túrílítú.