Annars gengur allt fínt. Marinó er búinn að fara 2 daga í skólann og líst vel á. Hann lenti í mjög góðum bekk og eru krakkarnir mjög hjálpsamir og reyna að gera allt til að auðvelda honum fyrir.
Atli er búinn að standa sig eins og hetja og er búinn að vera 3 daga í þessari viku aleinn á leikskólanum. Hann er mest með einum strák á sinni deild og skipar honum í bak og fyrir á íslensku og hinn skilur ekki neitt. Það er frekar fyndið að fylgjast með þessu.
Á föstudaginn fengu Gummi og Ása gáminn sinn og KK fór og hjálpaði þeim að bera inn dótið. Þau eru s.s flutt í næstu blokk og er mikill spenningur að fá leikfélaga á mínu heimili.
Í dag laugardag vaknaði fjölskyldan fyrir kl. 6 til að keyra til Árhúsa þar sem Marinó var að keppa í árlegri liðakeppni hér í Danmörku á milli allra liða. Atli nennti ekki að eyða tíma sínum í íþróttarhúsinu heldur kaus hann frekar að vera dekstraður af frændum sínum (kannski frekar stjórna þeim). Það var frábært að sjá framförina hjá Marinó, þeir þurfa þó að bæta sig aðeins því þeir lentu í 4. sæti af 5. Hann var í skýjunum eftir daginn og mátti hann það líka alveg.
Á morgun ætlum við skötuhjúin svo að skella okkur 2 í bæinn og rápa um og skoða á meðan Lilja ætlar að hafa ofan af fyrir strákunum.
Bið að heilsa í bili
Mvh. Begga
No comments:
Post a Comment