Skólastjórinn í skólanum hringdi loksins í mig á föstudaginn og við vorum boðuð á fund á morgun þannig ég vona að Marinó geti byrjað í skólanum á þriðjudag. Við bíðum spennt eftir því að fá að vita hvort það verði meiri bið á þessu.
Á föstudagskvöldinu fór ég svo í saumó hjá Andreu þar sem 10 íslenskar voru samankomnar að ræða málin. Það var mjög fínt, líka gaman að komast aðeins út :)
Á laugardaginn fórum við svo með lestinni upp til Aarhus í heimsókn til Óskar og Vilborgar. Þar var þvílíkt vel tekið á móti okkur. Axel og Ómar voru búnir að þrífa bílinn okkar hátt og lágt og áttu ekki til orð yfir skítnum hmmm. KK taldi líka að hann hefði aldrei þrifið hann svona vel. Nú er bara að viðhalda þrifunum. Atli og Marinó voru klesstir við frændur sína allan tíma og voru dekstraðir út í hið óendanlega. Í dag keyrðum við svo heim á kagganum sem var aðeins hnjaskaður eftir flutningana en við vonum bara að tryggingarnar coveri það.
Í síðustu viku fengum við uppsagnarbréf á leigunni! Málið er að sú sem sá um allt fyrir okkur lét okkur hafa reikning til að leggja inn á hjá leigufélaginu og við greiddum trygginguna og leiguna fyrir febrúar inn á þann reikning frá Íslandi. Þegar KK ætlaði svo að fara að leigja stæði í bílakjallaranum fékk hann það ekki þar sem við skulduðum félaginu. Við fórum að kanna málið og hafði þá frúin látið okkur fá reikning hjá öðru leigufélagi. S.s tæp millj. lá inni hjá röngum aðila. Hún ætlaði í ganga í málið strax. Við leigðum stæðið og héldum að allt væri klappað og klárt. 11 feb fengum við svo bréf um að febrúar væri ekki greiddur og KK hringdi strax í frúnna og sendum við henni kvittunina. Í vikunni var svo dinglað og var það pósturinn með ábyrgðarbréf sem var s.s. uppsögn á leigusamningnum, við áttum að vera flutt út innan 8 daga takk fyrir. Ég hringdi strax og ræddi við frúnna og ætlaði hún að láta mig hringja en þar sem mér fannst þetta hennar feill lét ég hana standa í þessu. Við vonum bara að það mæti ekki hérna flutningamenn í næstu viku og beri okkur út á götu. Við fengum á föstudaginn gíróinn fyrir mars þannig ég ætla bara að borga hann og vona að allt verði í lagi, annars flyt ég inn á frúnna með allt mitt hafurtask hahahaha ef hún bara vissi.
Jæja ég færir fleiri fréttir af okkur hér í baunalandi seinna. Bið ykkur vel að lifa þangað til.
Kv. Beggs
1 comment:
Hæ skvís,
Þú átt alla mína samúð að vera að standa í barningi við hinar ýmsu stofnanir...!
Bestu kveðjur í baunaland frá tjallalandi :)
Gia
x
Post a Comment