Til að fá bankareikning getur maður ekki gengið inn í næsta banka eins og á Íslandi og opnað sinn bankareikning, neiiii það þarf að panta fund í bankanum og tók það viku að fá þann fund. Við röltum yfir í bankann á mánudaginn í góðri trú um að allt myndi ganga vel en viti menn kerfið lá niðri þannig að fundurinn fór fyrir bí og við fórum aftur heim og biðum eftir símtali sem kom 2 dögum seinna. Nú bíðum við bara eftir okkar kortum þannig við getum byrjað að spandera :)
Þegar við fengum íbúðina afhenta þá átti maður að koma og fara yfir hvað væru margir slökkvarar, klósett, hurðar o.þ.h. í íbúðinni. Hann s.s meldaði sig 1.feb kl.10. Kristján var vaknaður fyrir allar aldir en svo leið og beið og ekki mætti maðurinn. Viku seinna kom afsökunnarbréf og ný tímasetning. Við drifum okkur í að koma sem flestu fyrir þannig að íbúðin liti þokkalega út. Daginn sem maðurinn átti að koma biðum við og biðum en nei ekki mætti hann. Það var ekki fyrr en mín sendi vel orðað mail á leigufélagið sem að hann loksins mætti til að taka allt út. Ef ég ætti að bera saman saudana og dana þá held ég að saudarnir hafi jafnvel verið áreiðanlegri, ótrúlegt en satt. Annars er íbúðin mjög fín og alveg frábærlega staðsett. Búum í litlu íslendingasamfélagi hérna, held að það séu 4 ísl. fjölskyldur í okkar blokk.
Atli komst strax inn á leikskóla og byrjaði í vikunni í aðlögun, svolítð sjokk bjóst ekki við að þetta gerðist svona fljótt. Það er aftur á móti annað mál með skólann hans Marinós. Við fórum strax á fund hjá skólaskrifstofunni sem gaf okkur upp síma og uppl. um skólann sem hann byrjar á að fara í og átti ég að hringja í byrjun þessarar viku í skólastjórann. Það var ekki fyrr en 4 dögum seinna, 8 símtölum og búin að skilja eftir nokkur skilaboð með númerinu mínu að haft var samband til baka. Við fengum s.s fund næsta mánudag í skólanum og vonandi fær hann að byrja strax daginn eftir. Ég hélt ég myndi snappa á einhverjum röngum aðila í þessu ferli. Maður lærir kannski að verða þolinmóðari hérna :)
Annars er búið að vera mjög rólegt hjá okkur. Kristján hefur verið á fundum og við erum búin að taka því rólega og átta okkur á hvernig landið liggur. Marinó byrjaði í fimleikum í vikunni og er s.s farinn að æfa 3x í viku 2 tíma í senn. Hann ætlar að keppa 1.mars í Árhúsum þannig þá fer hele familien að styðja við bakið á honum og kíkjum svo í kaffi til Óskars og Vilborgar á eftir.
Ég held ég láti þetta nægja í bili.
Mvh. Begga bauni
1 comment:
frábært framtak
Post a Comment