Wednesday, March 19, 2008

Snjókorn falla ....




Einhver sagði mér að í mars kæmi vor hér í Danmörkunni!  Ég get nú ekki alveg sagt það, það snjóaði s.s síðastliðnu 2 dag og er spáð áframhaldandi snjókomu.  Ég fór út í gærkvöldi með myndavélina aðeins að prófa mig áfram.  Maður verður nú að láta reyna á það sem ég lærði á námskeiðinu hjá honum Pálmari.  Þær eru aðeins yfirlýstar en þetta kemur allt með æfingunni :)

Annars höfum við haft það fínt hérna í Goldenberg.  Engilbjört kom og var í þrjár nætur hjá okkur í síðustu viku.  Við tókum hverja búðina á fætur annarri og skönnuðum vel og auðvitað var gengið út með poka úr sumum.  Inga Lóa millilenti svo hérna á fimmtudeginum og kom og hitti okkur niðri á Striki auðvitað.  Hún tók líka ágætis session í búðunum á mjög skömmum tíma.  Við sátum auðvitað þess á milli á kaffihúsum og spjölluðum um heima og geima.

Á laugardeginum skelltum við okkur fjölskyldan til Malmö.  Tókum rölt í bænum og kíktum á kaffihús.  Ég leit á manneskjuna fyrir framan mig og þar stóð Eva með kærastanum Einari og voru þau að njóta dagsins í Malmö líka.  Ótrúlega skemmtileg tilviljun :)  Við brunuðum svo til Þórhildar og Magnúsar í mat.  Mjög gaman að koma til þeirra í fallega húsið þeirra í "sveitinni".  Við eigum pottþétt eftir að fara oft í heimsókn til Svíþjóðar :)  

Nú eru allir komnir í páskafrí og bíðum við spennt eftir páskaungunum með eggin hehehe. Mamma og pabbi eru  að koma í kvöld og ætla að vera hjá okkur fram yfir helgi.  Auðvitað er vel skipulögð helgi framundan.

Við erum auðvitað í kasti yfir genginu og vonum bara að swap markaðurinn snúi sér sem fyrst til baka.

Fyrir þá forvitnu þá eru samningaviðræður á lokastigi og vonandi skýrist allt í næstu viku.  Kannski líka tími til kominn, því það er alveg komið gott af hangsi og væri gott að fara fá tekjur inn á heimilið.

Jæja best að fara að þrífa áður en gamla settið mætir á svæðið og tekur allt út múhahahhaa

Ég óska öllum gleðilegra páska.

2 comments:

Anonymous said...

Fínar myndir hjá þér :-)
Gaman að fylgjast með ykkur.
Það var saumó hjá Siggu K í gær, alveg kominn tími á að hittast og var gaman. Ég óska ykkur öllum gleðilegra páska, hafið það sem best

Begga said...

Tók þær á 30 sek. Rosa gaman að prófa sig áfram.