Marinó er mjög sáttur í skólanum og fer svo í frístundarheimilið eftir skóla. Á mánudaginn fer hann svo með Lindu, sú sem tekur hann í dönskukennslu í skólanum, ásamt fleiri útlendingum í sveitarferð. Mikil spenna fyrir það.
Fimleikarnir eru frábærir hérna og er Marinó þvílíkt spenntur að fara á æfingar. Ég sit í rúma 2 tíma á meðan og fylgist með og spjalla við foreldrana. Það er mjög gaman að sjá framfarirnar. Í gær voru þeir að æfa heljarstökk og framflikk. Ég lifi mig ótrúlega inn í þetta, kannski einum of :) Það er fínt að fara og hitta foreldrana, allri mjög almennilegir og ég tel að maður komist fljótar inn í samfélagið þegar börnin eru farin að stunda einhverjar tómstundir. Nú þarf ég bara að fara að koma Atla af stað líka.
Kristján er farinn að æfa á fullu. Annað hvort er hann úti að hlaupa eða í ræktinni. Svo er hann líka frekar harður í mataræðinu fyrir utan negrakossana sem hann dettur stundum í muhahahaha.
Á þriðjudaginn fann ég fyrir smá eirðarleysi þannig ég dró KK með mér í hjólatúr og hjóluðum við niður á Istegade og kíktum í búðir og skelltum okkur á kaffihús. Það var mjög nice. Það er um að gera að nýta tímann þar til hann byrjar að vinna.
Við keyptum okkur sjónvarp á miðvikudaginn í síðustu viku og áttum að sækja það á föstudeginum. Ég hringdi voða spennt í búðina til að tékka hvort tækið væri komið en eins og KK var búinn að segja þá var svarið miðvikudagur í næstu viku. Á miðvikudaginn hringdi ég aftur og þá var svarið í síðasta lagi á föstudag. Ég óþolinmóða manneskjan skildi eftir 2 skilaboð til að búðin myndi hringja í mig (hringdi í þjónustuverið) en enginn hringdi til baka. Í gær hringdi ég aftur og þá var það ekki heldur komið og ég lýsti yfir þvílíkri óánægju minni með þetta (var orðin svo spennt að fá tækið). Það var svo seinnipartinn í gær sem hringt var og tækið var komið jibbíí. KK sótti tækið og ég náttúrlega vildi fá það strax upp, þannig gærkvöldið fór í að horfa á fína sjónvarpið þó það væri ekkert skemmtilegt í boði.
Fyrsti gesturinn er búinn að boða komu sína í næstu viku, gaman gaman. Engilbjört vinkona ætlar að koma á þriðjudaginn og vera fram á föstudag. Þannig næsta vika verður í búðum og á kaffihúsum. Ekki leiðinlegt það og hlakka ég mikið til að fá hana.
Jæja þá er kaffibollinn búinn og ég ætla að fara að taka úr þvottavélinni :)
Bið að heilsa í bili
3 comments:
Frábært að fá að fylgjast með ykkur hérna:)
Ég öfunda Engilbjörtu ekkert smá að vera á leiðinni í heimsókn til ykkar:)
En gaman að lesa... vissi ekki að þið væruð með blogg. Gott mál! Bið að heilsa ykkur og ég fylgist spennt með, langar immit að flytja svona út :)
Veivievieieei gaman að heyra svona frá ykkur :) Vera svo dúleg að blogga :)
Post a Comment