2 til 6-døgnsudsigt
Enn einu sinni að svekkja ykkur, en það er bara búið að vera geðveikt veður hérna.
Ma og pa komu í heimsókn á afmælinu hjá Atlaling. Gosi hafði komið helgina áður, s.s á meðan ég var á Íslandi. Haldið þið ekki að hann hafi smitað alla hérna í nimbusnum af ælupest ojojoj. Það lögðust allir hver af fætur öðrum og þar á meðal mamma og pabbi líka. Ekki það skemmtilegasta, Gosi á von á hatursbréfi hérna frá íbúunum í Nimbusnum.
Við héldum upp á afmælið hjá Atla hérna út í garði, það var aðeins fámennara heldur en hefur áður verið en það var góðmennt. Smá tilbreyting að vera ekki sveitt fram á nótt að baka hahahha.
Andrea og ég skelltum okkur á lagersölu hjá Marlene Birger og gerðum góð kaup. Daginn eftir fórum við svo í góða bæjarferð án þess að stíga inn á Strik og fundum út að það væri lagersala í WoodWood daginn eftir. OMG við hjónin gengum út með ruslapoka :) sem betur fer vorum við á stóra hjólinu. Við erum að tala um að flíkur sem kostuðu áður tugi þúsunda hafi verið á 100-300DKK. Okkur fannst það ekki leiðinlegt! Eftir lagersöluna skelltum við okkur í bakarí og garð og nutum góða veðursins. Dagurinn endaði svo á stepudjammi á Jolene.
Við fjölskyldan skelltum okkur svo á ströndina í dag. Frúin var að reyna að ná bóndafarinu fallega sem hún var búin að ná sér í í sólinni.
Næst á dagskrá hjá okkur er að taka á móti Ingibjörgu, Hlín og Davíð í þessari viku. Hlökkum mikið til að hitta þau.
Þangað til næst
1 comment:
Hæ pæja. Ég er ekkert smá svekkt, hér rignir stöðugt!!! Er að plana barnaafmæli líka, verður mitt fyrsta "stórafmæli", mikið stress í gangi þar sem Óðinn vill bjóða ÖLLUM. Knús frá okkur
Post a Comment