Friday, May 2, 2008

Sól sól skín á mig...



Það iðar allt af lífi í Kóngsins Köbenhavn, veðrið er búið að vera vægast sagt frábært fyrir utan einn rigningardag í gær.
Atli er búinn að vera alla vikuna í fríi á leikskólanum þannig að við erum bara búin að vera 2 að dúlla okkur í rólegheitum á meðan Marinó er í skólanum og KK að mála :)

Ég skellti mér í stelpu/húsmæðraorlof til Oslóar um síðustu helgi.  Helgin var frábær!  Við vorum heima hjá Sigrúnu allan tímann, fyrir utan þegar íslandshúsmæðurnar skelltu ser í mallið til að versla "smá".  Reyndar fórum við inn til Osló á laugardeginum og Christina kom með til að skoða Operuhúsið.  Ég var voða glöð með að fá að skoða eitthvað aðeins af menningunni í Osló.  Takk Sigrún fyrir frábæra helgi, þetta verður sko pottþétt endurtekið.  Manni finnst alveg ótrúlegt að koma óþreyttur heim hahahaha.

Það eykst gestagangurinn og nú er júní orðinn fullur :)  Herdís og Svanhildur ætla að skella sér til okkar í nokkra daga og verður mjög gaman að hitta þær.  Hildur og Felipe eru að hugsa um að koma líka eina helgi.  Davíð mætir í mat til okkar og svo auðvitað Magnea og Frosti.  Það verður voða gaman að fá alla.  Við hittum örugglega fólk oftar eftir að við fluttum út :)

Þórhildur og Magnús ætla að koma í dag mat til okkar og svo á KK afmæli á morgun og þá mæta hingað Ævar og Gugga.  Herra forvitinn uppgvötaði hvað ég hafði hugsað mér að gefa honum og bannaði mér það, s.s hjólabretti.  Kannski viturlegt þar sem aldurinn er farinn að segja til sín hehehe.  Þannig ég og Atli skelltum okkur í bæinn og keyptum gjöf.  Þegar við komum heim földum við hana vel og vandlega. Haldiði ekki að hann hafi farið af stað, ég er viss um að hann hafi verið að leita af henni, og fann hann gjöfina.  Ég er búin að vera brjáluð út af þessu og langar helst að skila þessu :)  

Á miðvikudaginn síðasta hittust svo desperate housewifes hérna í nimbusnum.  Við vorum 9 talsins og var svaka stuð hjá okkur.  Vonandi verður þetta að svona reglulegum hitting.

Jæja er farin út í góða veðrið, þar til næst... 

1 comment:

fiapia said...

Bara gaman að frétta svona af ykkur :) Ég fór einmitt í jómfrúarferð mína í Saltfélagið um daginn og hugsaði til þín allan tímann. Ég hélt í alvörunni að þetta væri mega lítil sjoppa en neinei, það var hægt að labba í einhvern svaka helli þarna ;)

Annars voru að koma fyllerísmyndir af vinnunni á bloggið ;)